fbpx Skip to main content

Góð ráð fyrir ferðafólk

Góð ráð fyrir ferðafólk með hjólhýsi, fellihýsi og báta

  1. Fylgist með vatnsborði opinna rafgeyma. Sjáið til þess að yfirborð vatns sé 15mm fyrir ofan plöturnar.
  2. Sjáið til þess að rafgeymirinn sé í vel loftræstu rími þar sem hleðsla fer fram.
  3. Sjáið til þess að rafgeymir sé vel festur og á lóðréttum fleti.
  4. Setjið loftræstinguna í rafgeymarými sem leiðir beint út í frískt loft. Passið að leiða ekki loftið inn í vagninn eða bátinn.
  5. Þegar rafgeymir er aftengdur þá á alltaf að aftengja mínus (-) pólinn fyrst. Þegar nýr rafgeymir er síðan tengdur þá á alltaf að tengja (+) pólinn fyrst.
  6. Haldið ávallt rafgeymi fullhlöðnum. Þetta ætti að passa sérstaklega ef vagninn eða báturinn stendur ónotaður í lengri tíma. Sérstaklega yfir vetrarmánuðina.
  7. Rafgeymir sem er án hleðslu frýs og eyðileggst við -10 gráður. Fullhlaðinn rafgeymir frýs hinsvegar og eyðileggst við -70 gráður. Tryggið ávallt fulla hleðslu rafgeymis.
  8. Sjáið ávallt til þess að rafgeymapólar og kaplar séu hreinir og smyrjið þá ef til vill með sérstakri sýrufeiti.
  9. Þegar rafgeymirinn er ekki í notkun um veturinn sjáið þá til þess að aftengja rafgeymi. Rafgeymar geymast best á þurrum og köldum stað. Fullhlaðið ávallt rafgeymi áður en honum er komið fyrir í geymslu. Athugið rafgeymi reglulega og mælið hvíldarspennu hans. Ef hvíldarspenna er undir 12,4 V skal hlaða rafgeymi að nýju þar til spennan er 12,7 V.
  10. Ef rafgeymarnir verða algerlega afhlaðnir getur orðið efnabreyting í þeim sem ekki gengur til baka. Rafgeymirinn getur þá misst verulega hleðslurýmd sína, eða þá hleðslu sem kemst inn á geyminn. Með þessu móti er hægt að eyðileggja rafgeyma.

Hafið í huga að hvíldarspennu rafgeyma skal mæla þegar rafgeymir hefur verið álagslaus í minnst 2 tíma.