Rafgeymir er hluti af lykilbúnaði
Á síðustu árum hefur aukin notkun á rafmagni og rafeindabúnaði einkennt þær breytingar sem hafa orðið í þróun á bílum. Því er mikilvægt að rafgeymirinn sé í góðu ástandi.
VARTA rafgeymar í 125 ár
Rafgeymasalan ehf býður upp á VARTA rafgeyma fyrir fólksbíla. Sögu VARTA rafgeyma er hægt er að rekja 125 ár aftur í tímann, en í dag er fyrirtækið bakkað upp af Johnson Controls sem er leiðandi í heiminum í þróun og framleiðslu á rafgeymum.
Varta býður upp á mikið úrval rafgeyma sem þjóna mismunandi þörfum bílaeigenda. Hafðu samband og við finnum rétta rafgeyminn fyrir þig.
Einnig er Rafgeymasalan ehf með rafgeyma frá Berga og Danbrit.
Þjónusta Rafgeymasölunnar ehf.
Álagsprófun rafgeyma, hleðslumæling og ísetning rafgeyma á staðnum er viðskiptavinum að kostnaðarlausu við kaup á refgeymi frá Rafgeymsölunni ehf. Aldrei löng bið og engar tímapantanir, skipti á rafgeymi tekur ca 5-10 mínútur og þú bíður á notalegri biðstofu Rafgeymasölunnar ehf á meðan skiptin fara fram. Renndu við hjá Rafgeymasölunni ehf. og fáðu okkur til að kíkja á rafgeyminn þinn, Rafgeymasalan ehf er þekkt fyrir snögga og góða þjónustu.
Einnig þjónustum við rafgeyma úr ferðavögnum, húsbílum o.fl. yfir vetrartímann gegn vægu gjaldi. kíktu á linkinn okkar „Rafgeymahótel“
Bílar með Start-Stop búnaði.
(sjálfræsibúnaði, þ.e búnaði sem drepur á bílum við stöðvun og startar sjálfvirkt þegar tekið er af stað)
Bjóðum upp á rafgeyma AGM Dynamic Advanced technology ECO friendly (umhverfisvænni rafgeymar) frá Varta, Þetta eru þurrrafgeymar sem henta sérstaklega fyrir bíla með Start-Stop búnaði sem er kominn í langflesta nýlegri bíla. Þetta eru rafgeymar sem þola fleyri stört, endurhleðslur og meira álag en aðrir rafgeymar og hærra hleðslustig þ.e >14.7volt meðan venjulegir rafgeymar þola mest >14.4volt.